Skilmálar vefverslunar Hestvænt ehf.

Um fyrirtækið

Hestvænt ehf.
Kt: 4701101200 vsk nr. 141200.
Akurhvarf 2, 203 Kópavogur.
Sími 8468874
hestvaent@hestvaent.is 

Með því að nota vefverslun Hestvænt ehf samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Almennt

Allar upplýsingar á hestvænt.is, verð, birgðastaða o.s.frv. eru birtar með fyrirvara um villur. Uppgefin verð á heimasíðu eru með Vsk. Um leið og þú hefur staðfest vörukaup þín með greiðslu, sendum við staðfestingu á netfangið þitt. Ef þú velur millifærslu sem greiðsluleið þá munum við setja pöntun af stað um leið og greiðsla berst. Vinsamlegast sendið staðfestingu á millifærslu á hestvaent@hestvaent.is. Hestvænt áskilur sér rétt til að hætta við pantanir vegna rangra verðupplýsinga, ónægra birgða, breyta afhendingartíma og hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Sendingarkostnaður og afhending vöru

Pantanir eru afgreiddar næstar virka dag og berast að jafnaði til kaupanda á 1-3 dögum. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband við þig og tilkynna áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Allar pantanir eru sendar með Póstinum/Íslandspósti á kostnað kaupanda. Einnig er hægt að senda okkur skilaboð og óska eftir að fá að sækja á höfuðborgarsvæðinu. Skilmálar póstsins gilda hvað afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilamála varðar. Sjá nánar á vefsíðu fyrirtækisins. Hestvænt ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. 

Frí heimsending er á pöntunum yfir 15.000 á höfuðborgarsvæðinu, nema annað komi fram í lýsingu á vöru. 

Skila- og endurgreiðsluréttur

Skilafrestur á vörum eru 14 dagar að því gefnu að varan sé ónotuð, henni sé skilað í góðu lagi og óuppteknum í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Skilafrestur gildir frá þeim degi er vara afhendist. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla fer fram eftir að Hestvænt ehf hefur móttekið vöruna. 

VIð skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. 

Vörur sem keyptar voru á lækkuðu verði, á t.d útsölum, rýmingarsölum, lagersölu o.s.frv. Eru seldar í því ástandi sem þær eru og ekki hægt að skila.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og/eða viðgerð í samræmi við lög um neytendaábyrgð. Hestvænt greiðir allan sendingarkostað sem af þessu hlýst. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003 og laga um neytendasamninga. 

Notkun á persónuupplýsingum

Hestvænt heitir kaupanda fullum trúnaði um þær upplýsingar sem kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.