Kjarninn í PolyJumps slánum er úr þykku plasti sem gefur slánum styrk til að þola spörk og högg frá hestinum. Ytri byrði slánna er úr þynnra plasti sem gefur litinn og er hannað til þess að viðhalda litnum þó slárnar séu skildar eftir úti í alls kyns veðrum og vindum. Slárnar eru léttar og meðfærilegar þar sem þær eru eingöngu úr plasti, svo auðvelt er að færa þær til og stilla eftir þörfum. Þær henta öllum hliðarblokkum og upphækkunum frá PolyJumps.
Pro slárnar eru 210 cm að lengd og 100mm að þvermáli. Þær eru hentugar þegar setja á upp stærri hindrun og passa þær án millistykkis í Cavaletti krossana.