ThinLine skóinnlegg fást í tveimur þykktum:
Þunn (2.4mm) – Þunn innlegg sem breyta ekki hvernig skórinn passar á fæti og því hægt að nota yfir innlegg sem koma með skónum. Hentar einnig mjög vel með bæklunar-/læknainnleggjum (setjið ThinLine innleggin undir bæklunar-/læknainnleggin), í hlaupaskó og fínni skó.
Þykk (4.8mm) – Þessi innlegg henta vel í vinnuskó, reiðstígvél/reiðskó í staðinn fyrir innlegg sem koma með skónum. Einnig gott að nota í skó sem eru aðeins of stórir. Auka þykkt sem veitir mikla vernd þegar staðið er í langan tíma í einu. Þykktin er sú sama og á hinum einstöku ThinLine undirdýnum.