Hvernig virkar meðferð með nuddbyssu?
Nuddbyssan býr til hröð þrýstihögg sem beint er á vöðvavefi. Við þrýstinginn eykst blóðflæði sem hjálpar til við að draga úr bólgumyndun. Þrýstingurinn örvar sogæðakerfið en með auknu blóðflæði eykst súrefnisupptaka vöðvanna sem hjálpar til við losun á úrgangsefnum, s.s. mjólkursýru sem dregur úr líkum á harðsperrum. Meðferð með nuddbyssu getur verið afar gagnleg fyrir bæði hest og knapa, fyrir vöðva, liðbönd og bandvefi.
- Losar um vöðvaspennu og hefur slakandi áhrif.
- Hjálpar til við upphitun og eykur hreyfigetu.
- Flýtir endurheimt eftir æfingu.
- Losar um endorfín sem veitir vellíðunartilfinningu og er jafnan kallað “náttúrulegt verkjalyf líkamans” þar sem þau koma í veg fyrir sársaukaboð til heilans og eru þar af leiðandi verkjastillandi.
Öflug rafhlöðuending
Þar sem það tekur eingöngu 2 klst að fullhlaða nuddbyssuna fyrir 5 klst notkun þarf ekki að hafa áhyggjur af því að hlaða í miðri meðferð.
Mismunandi hraðastillingar
30 mismunandi hraðastillingar bjóða upp á möguleikann að stilla nuddbyssuna eftir næmni tiltekinna svæða.
Skiptanlegir nuddhausar
6 mismunandi nuddhausar bjóða upp á að vera með sértæka meðferð fyrir mismunandi svæði líkamans
Afar hljóðlátur mótor
Þrátt fyrir að vera öflug er nuddbyssan afar hljóðlát og ætti því ekki að trufla hestinn við að slaka á þegar meðferð er beitt
Hvað fylgir með?
Með Equice Pro nuddbyssunni fylgir allt sem þarf fyrir alhliða meðferð.
- 1x Equice Pro Nuddbyssa
- 1x Burðartaska
- 6x Nuddhausar
- 1x Hleðslutæki
- 1x Leiðbeiningabæklingur fyrir meðferð á hestum
Hjálpaðu hestinum þínum að líða vel!
- Náðu fram andlegri og líkamlegri vellíðan og slökun
- Komdu í veg fyrir harðsperrur eftir krefjandi æfingu
- Minnkaðu líkur á meiðslum